Sing for the Moment

Bjarney Halldórsdóttir

24.06.2007 05:01:06 / bjarney

Aloah sumar......

Góða kvöldið elzkurnar,

Ég sit heima með tölvuna í fanginu eftir rosalega skemmtilegt djamm. Reyndar eins og venjulega þá er ég komin snemma heim, eða þá er klukkan um hálf fimm, og ég er komin heim. Já svona  er þetta þegar allir fara bara á undan mér heim..... Steinnunn,,,, bara farin heim að sofa....hvað á þetta að þýða. Ég fór af Hverfis niður á Nasa þar sem Hljómar voru að spila, þeir eru by the way ekki Hjálmar frá Keflavík heldur eitthvað Reaggie theingy. Við fórum nú fljótt þaðan og yfir á Gaukinn þar sem Ný dönsk var að spila og vá hvað var gaman þar.... ekkert smá...... enda einhverjir sem ég þekki í fararbroddi ;) Ég skemmti mér alveg konunglega enda alveg með konungsbornu fólki til að skemmta mér vel. Fyrir utan að ég er alveg að drepast í fætinum en hvað harkar maður ekki af sér...... Ég er að huxa um að hafa þetta létt og lagott og koma ekki með neina gullmola enda alveg búin að láta allt flakka sem ég gat á leiðinni heim og á því lítið eftir.... ekkert þess virði að slá inn alla vega..... ekkert sem þið hafið ekkert heyrt áður eins og síklar á handriðum, síklar í gegnum blásturs þurrku dæmi á almenningssalernum, beinhákarlar og ælugjöld í leigubílum og þess háttar þannig að ég ætla bara að láta þetta gott heita og hætta þessu og vona að þetta sé lesturshæft með mjög fáum stafsetningarvillum þar sem að ég er að pikka þetta inn á fartölvuna sem ég er ekki vön, haugafull og gleraugnalaus en nóg um afsakanir í bili en þið takið þessu létt :) adiós

Kv. Hin leggjalanga, hávaxna, rassstóra og gegnsæja Bjarney ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 23:54:29 / bjarney

Spurningar teknar frá Guðrún Ástu

1. Hefuru slegið einhvern í andlitið?

2. Hve gamall/gömul ertu

3. Frátekin/n eða einhleyp(ur) ?

4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld?

5. Dreymir þig á nóttunni?

6. Hefuru séð lík?

7. Hefuru óskað þess að einhver deyji?

8. Ertu að fíla Gogga Bush? Nú þegar stöðluðu spurningarnar eru búnar, byrjum á góða stöffinu.

9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega?

10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því. Hvað myndi það vera?

11. Treystiru lögreglunni?

12. Hlustaru á kántrí?

13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér?

14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það vera?

15. Myndiru deita mig?

16. Í hverju sefuru?

17. Hefuru pissað í sundlaug á meðan þú ert ennþá að synda?

18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig ?

19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í dag?

20. Hvað finnst þér best um mig?

21. Er ég hot?

22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn?

23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera?

24. Segðu mér eina heimskulega / tilgangslausa staðreynd um þig.

25. Muntu endurpósta þessu svo ég geti svarað þér?

» 6 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 03:27:51 / bjarney

Jay to the A

Jóhanna, as in Djóena, A.K.A Jógó er beiler !!! Hvað vorum við að tala um beilara ársin ha??? Vonandi gengur þér vel með lokaverkefnið :haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 04:17:33 / bjarney

Afmælisbarnið!! IT afmælisbarn!!

Góða nótt peepZZ,, hvað er að frétta. Ég sit hér heima með Höllu og Steinunni að blogga,,,, hmm ég veit alveg hvað þið eruð að huxa..... hvað eru þær að fara að gera á eftir..... við erum alla vega ekki að fara niður í bæ þar sem að klukkan er svo margt. Erla mín, innilega til hamingju með daginn fyrir miðnætti og elsku Kalli og Erla innilega til hamingju með brúðkaupsafmælið líka fyrir miðnætti en við vitum öll að það framkallaði þessa æðislegu fæðingu sem átti sér stað fyrir 22 árum..... á þessum dýrðar degi.... bara ef Kalli og Jói, elzku dúkkurnar mínar væru hjá mér..... þær fara nú að koma til mín..... þegar allt góssið verður flutt,,,,, nei elzkurnar mínar, þið munuð aldrei þurfa að búa á Ísafirði... það mun ég ekki leggja á ykkur, greyin mín. Ég er hérna algjörlega á rassgatinu, langar mest niður í bæ,,,, við reddum því um næstu helgi..... hvað segiru bróðir Emils, verðuru að spila á laugardaginn á Sólon :) Hvað eru komnar margar stafsetningavillur hjá mér...... hvernig væri að þið væruð svo góð að telja fyrir mig..... ég er ekki í ástandi til þess....... múhahahah.... hvað segiði stelpur, eigum við að hætta að hlusta á hringitóna,,,, nú það er hætt :D múhhahhahahha..... ég sit hér (ekki ein) og skemmti mér :D Ég er á leiðinni í afmælið mitt og Magnúsar Karls á morgun, já elsku Magnús minn til hamingju með afmælið, líka fyrir miðnætti :D Hvað á ég annars að gera morgun, einhverjar hugmyndir takk :D mmmm ég er að borða ídýfu,,, já ég veit hvað þið huxið and I don't fkn care......

Jæja, ég er að huxa um að hætta þessu..... fara bara að gera eitthvað annað, ég veit að þið elskið mig og allt það, sendið mér bara skeyti, sjá postur.is :P


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 19:16:46 / bjarney

Apríl 2

Góða kvöldið,

 Hvar er nú að frétta af Bjarney. Júbbs það er rétt, það er ekki mikið sem er að frétta af henni. Hún var samt að kaupa sér nýja fartölvu og er að blogga í henni og þið vitið ekki hvar hún situr núna í makindum sínum með tölvuna og er að blogga, jú ég held að það sé rétt hjá ykkur það sem þið eruð að huxa um ;)

 Það er partý um næstu helgi heima hjá mér, endilega ef þið viljið koma þá bara hafa samband við mig og fá boðsmiða ;) Ég gæti sagt nei en það er bara þá ef þú ert leiðinlegur (enga móðgun) en það eru nú litlar líkur á því...múhahahaha.

 Vá hvað mig langar í stóra slæsu af Dominos pizzu með extra miklum osti og pepperoni..mmmmm... ég er búin að sjá þetta í hyllingum í allan dag og ég by the way borða ekki pizzu sem er bara með pepperoni en samt langar mig heavy í!!!

 

Úfff mér er svo heitt á eyrunum. Lendið þið einhvern tímann í þessu að veras bara heitt á eyrunum, samt ef ég kem við þau þá eru þau köld. Vá hvað þetta er skrítið, mér líður eins og að ég sé geimvera ??!!!?? Er eitthvað til í því ? Ég er ekki græn er það?

 

En allavega, takk fyrir í dag, ok bless! 


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 21:42:51 / bjarney

Apríl

Góða kvöldið,

Hvað ætti ég að segja ykkur núna?? Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér þannig að ég hef ekki gefið mér tíma til að skrifa hér inn, enda aldrei talið mig vera ekta bloggara, málið er bara að ég er góður bloggari og skrifa yfirleitt skemmtilega pistla þannig að þetta er aðallega hópþrýstingurinn sem fær mig til að halda áfram. 

 Verkefni vetrarins - árshátíðin, fór fram með prýði - finnst mér allavega, ég var kosin (ung)frú Ikea og er vel að þeim titli komin, myndi ég segja enda var þetta svona peoples choice... bjóst alls ekki við þessu - tja vissi samt að ég fengi einhvern titil...múhahaha.

 Ég var samt að huxa, athuga hvernig viðbrögðin verða hjá lesendum, málið er að ég er að pæla í því að halda partý...28.apríl - hvernig finnst ykkur?? = hver ætlar að þrífa fyrir mig.....

 Ég er komin með myspace ... BowWow og Zidane eru vinir mínir, awsome!!

En allavega, segjum það, ok tak bless....

Pís át 


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 11:15:13 / bjarney

Ég á hvergi heima, nema veginum á!

Já þannig er það nú, maður sér bara æsku minningarnar hörfa á brott eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ég hætti þá bara að halda jól - nema að fara til heitra landa, já hvernig væri það, pant ég!

 

 Vegbúi vertu mér hjá, segðu mér sögu já segðu mér frá.

 

Mig langar í súrmjólk!

 

Alltílagibless


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 19:44:38 / bjarney

Olrædí ðen!

Jæja, hvað á ég að segja ykkur skemmtilegt! Ég er á lífi það er eitthvað sem er á hreinu, alls ekki dauð, enn þá. Það fer reyndar að styttast í það. Ég veit ekki hvort ég eigi að fara að rifja eitthvað upp síðan ég bloggaði síðast en þá þyrfti ég að fara að telja upp jólagjafirnar þannig að ég sleppi því, í bili, maður veit aldrei hvað maður gerir í júlí :)

 Er farin að huga að því að ákveða hvenær ég ætla í sumarfrí - get ég fengið hjálp við það --- einhver sem getur reddað mér aukavinnu á meðan ég er í sumarfríi :) endilega látið mig vita.

 Það hefur lítið á daga mína drifið undan farið. Bara alltaf same old same old! Horfi bara á mína Nágranna og mitt Beverly Hills í friði.

En alla vega þá segji ég þetta í bili, þarf að svara í símann :P

 

Kv. Drífa Snót


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 13:32:54 / bjarney

Activity!

Vá hvað ég ætla að vera eitthvað ofur aktív í þessum bloggheimi þessa vikuna. Það er bara svo mikið búið að gerast, finnst ykkur ekki. Djamm annað kvöld, hvað segiði á ég að blogga aftur fyrir ykkur þegar ég kem heim af djamminu??? Hvernig væri nú að fá smá viðbrögð við þessari spurningu.... þið kanski segið mér hvað ég á að blogga um??? Anyway þá......

Alla vega þá hefur fleira drifið daga mína. Ég er nýkjörin formaður Starfsmannafélags Ikea! Finnst ykkur það nú ekki flott? Það sem meira er þá get ég sagt að aðrir meðlimir stjórnarinnar hafi samþykkt mig einróma. Einróma, finnst ykkur það ekki nett orð. Þetta er nýja uppáhalds orðið mitt :) En nú get ég alla vega sagt vera Formaður Starfsmannafélags Ikea 8) ótrúlega töff á því :lol:

Hvað um það þá ætla ég að segja það gott í bili ;)

Ég ætla að skella inn einni flottri mynd af mér, svona svo þið sjáið hversu til fyrirmyndar ég er :lol: 


» 13 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 23:32:44 / bjarney

Enginn ætti að særast núna,,,, nema þá kanski.....

Jæja, ég veit nú ekki hversu margir lesa enn bloggið mitt. Kanski aðallega vegna þess hve harð orður síðasti pistill var og síðan hversu sjaldan ég blogga. Ég ákvað samt að blogga aðra færslu þar sem ég var beðin um það í kommenta kerfinu, og auðvitað vil ég reyna að gera eins mikið og ég get fyrir aðdáendur mína.

Ég vil einna helst segja ykkur frá æðislegum þynnku rúnti sem við Signý fórum í á sunnudag. Eftir að hafa skoðað aðeins í Smáralindinni og nýju versluninni í Smáranum, Egg (ég er samt að huxa um að fara ekkert langt með skoðanir mínar á þeirri verslun) og fengið okkur að borða á Pizza Hut Sprengisandi (sjaldan fengið eins góða þjónustu á Pizza Hut, ótrúlegt en satt, ég!) þá vorum við á leiðinni í Vatnsendahverfið þegar við sáum afleggjarann til Hveragerðis og ákváðum að kíkja þangað þar sem að að þetta væru bara 35 kílómetrar. Þegar við vorum komnar til Hveragerðis þá sáum við skilti 13 km til Selfoss þannig að við ákváðum að rúlla aðeins yfir bara til að skoða! Við keyrðum þó nokkrar göturnar á Selfossi, ca. 10 manns farið úr hálslið eftir að sjá nýjan bíl sem enginn þekkti á götunum þá rákum við augun í enn eitt skiltið, Gaulverjabær 12 km. Hvað er Gaulverjabær, síðan hvenær er til bær með nafninu Gaulverjabær..... og ég sem hélt að það væri langt til KÓPASKERS, en í mínum huga er ekkert lengra en að fara á Kópasker (aðallega vegna þess að enginn veit hvar Kópasker er!) Jæja við ákváðum alla vega að við þyrftum að fara og skoða þennan bæ. Vorum jafnvel farnar að huxa út í það að þarna væri kanski hægt að finna sér mannsefni. Jæja við leggjum á bílinn og hann tekur þarna flotta hægri beygju og við erum lagðar af stað áleiðis til Gaulverjabæjar. Lengi (á þessum 12 km) keyrðum við án þess að sjá nokkuð skapaðan hlut. Á víð og dreif við vegin voru samt önnur skilti með afleggjurum að bæjum og skiltum eins og Holt 2 km. En ekkert var farið að sjá til Gaulverjabæjar! Stuttu seinna komum við að afleggjara í tvær áttir, Villingarmannaholt - Stokkseyri, þar sáum við þá allt sem við höfðum verið að leita að. Leitinni var loksins lokið, við höfðum fundi Gaulverjabæ, þessi FIMM hús sem saman standa undir þessu nafni, Gaulverjabær og ábúendurnir eflaust kallaðir Gaulverjar! Við ákváðum þá að leið okkar yrði haldið til Stokkseyrar, þar sem að vissum að þar myndum við finna sjoppu. Þegar þangað var komið sáum við skilti Eyrarbakki 3 km þannig að við ákváðum að fara þangað. Þar sem að hvorug okkar höfðum nú komið til Þorlákshafnar (eða svo héldum en Signý hafði nú reyndar komið þangað einu sinni) þá ákváðum við nú að koma við þar. Við ákváðum að kíkja nú á skiltið til að sjá hversu langt væri þangað en eina sem við sáum var að það voru komnir 61 km frá REYKJAVÍK!! Það var eins gott að við kíktum ekki annars staðar á þetta skilti. Allar þessar stuttu vegalengdir voru nú þegar orðin ein stór heild! Minnstu mátti muna að við værum komnar á Egilstaði!! Eftir Þorlákshöfn lá leið okkar í bæinn með smá viðkomu í Hveragerði þar sem við rúntuðum aðeins um göturnar þar! Hver segir svo að þynnka sé ekki skemmtileg ;)

Það hefur nú meira skemmtilegt verið í lífi mínu síðan á laugardagsnóttina. Kosning í nýja stjórn hjá Starfsmannafélagi Ikea var fyrr í kvöld. Ég bauð mig fram aftur með miklum látum. Má segja að ég hafi mútað fólki með sleikjó og tyggjó í allan dag! Mér leið næstum því eins og ég væri ein í baráttu, en ég uppskar fyrir erfiðið og er nú aftur í stjórninni í vetur. Þeir sem komust líka áfram voru Signý, Eva Lind, Kristinn og Jónas ;) alveg æðislegt skal ég segja ykkur :)

En allavega þá ætla ég að segja þetta gott í bili og fara að horfa á Beverly Hills 90210 ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 04:40:54 / bjarney

Howdie yo pípól

Sæl og blessuð verið þið öll saman! Ég var að koma heim af hinu þræl hressa Ikea djammi á Sólon, hvar annars staðar,,,, alltaf skemmtilegast þar... Austmaðurinn sjálfur að spila,,,, hvað gæti verið betra en það! Ótrúlega gaman..... gekk reyndar illa í match making og líka hjá þeirri sem var að "match make-a" mig,,,,, alla vega sit ég hérna ein heima klukkan hálf fimm.....hmmmm ekki nógu gott, ha!!!! Ég er bara svo lengi búin að lofa að blogga þannig að ég bara varð! Ég er búin að kaupa mér nýjan bíl, ójá Toyotu Corollu 2005 sport, alveg gjeggjaður! Svo var djamm í kvöld og út að borða næsta laugardag.... bara fullt að gerast... svo er verið að fara að kjósa í nýja stjórn í Ikea starfsmannafélagið og ætla að bjóða mig aftur fram..... já ég er djörf stelpa..... ég veit að ég er rosalega hrædd við höfnum en ég ætla nú samt að hafa mig í þetta aftur.... veit nú ekki hvort ég komist núna þó ég hafi verið nokkuð viss í fyrra,,,, tja miðað við þá sem buðu sig fram á móti mér,,,,,, múhahaha,,,,,, nei ég segi nú bara svona....sjáiði nú er ég búin að vera rosalega dugleg að laga stafsetningarvillur, það er svo rosalega erfitt að skrifa full en þetta er samt hægt! Afhverju getur þá alsgáð fólk ekki **** *****, *** *** ***** eða ****** *** *****...... ******** ********.... það er bara notað sem *******..... bara læra ******** ********* eins og aðrir,,,, fyrir mér er þetta bara ****,,,, án gríns! Þetta er eins og með örvhenta í gamla daga, þeir voru bara látnir skrifa með ******** HÆGRI hendinni, svo einfalt var það! En alla vega svo ég fari nú ekki lengra út í þetta og svo ég móðgi nú ekki fleiri (sem hafa ekki nú þegar móðgast, þá ætti ég að tala um eitthvað annað) Ég veit nú ekki hvort ég hafi eitthvað meira að segja.....ég veit að það bíða allir spenntir eftir bloggi en ég reyndi tvisvar síðasta sunnudag að blogga en þann dag "restartaði" tölvan ÞRISVAR!!! (sko tölvan í vinnunni) Já hvað get ég gert betur en það.... svo hef ég ekkert endalaust til að blogga um.... ég nenni til dæmis ekki að blogga um vinnuna all the time,,,,, ég nenni ekki einu sinni að lesa þannig blogg, þess vegna les ég mjög fá blogg! En svona til að skrifa við blogg heiminn og VONA að einhver lesi þetta þá svona til skemmtunar þá er Austmaðurinn,,,, a.k.a Emilsbróðir búinn að samþykkja að láta mig fá áritaða mynd af sér þannig að Emil minn, nú bara verðuru að redda þessu e'skan...... vá hvað ég hef nú eitthvað lítið að segja ......mig langar samt í góðan hamborgara með tvöföldum osti og sveppum mmmmm hvað það væri gott......af hverju fóru allir svona snemma heim á undan mér, allt í einu var ég bara ein!!! hvað var nú málið með það!!! það var svossem allt í lagi, ég hitti fullt af skemmtilegu fólki..... en alla vega, þá segjum við þetta, ég reyni að skoða þetta á morgunn til að ritskoða!! adios amigos my friends!

 

Þessi texti hefur nú verið ritskoðaður, hann má panta í heild sinn á chumacher_13@hotmail.com">schumacher_13@hotmail.com – ef það er einhver sem er enn ósáttur þá má hinn sá sami endilega láta vita. Ég vil minna á að ofangreindar rökfærslur eru bara mínar skoðanir og endurspegla á engan hátt skoðanir þjóðfélagsins!



 


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 20:39:28 / bjarney

Loksins loksins á Íslandi*sjá neðar í texta, stjörnumerkt.

Já það var nú tími til að fólk fór að commenta um það að ekkert væri bloggað á þessa blessuðu síðu. Eins og allir vita þá er ég nokkurnvegin nýkomin frá útlöndum.... í stuttu máli var það bara fínt...... mig langar að fara aftur..... kanski ekki á sama stað en þar sem það er heitt..... það er svo kalt hérna!!!!!

Svo eru það þessir blessuðu Dýrafjarðardagar.... Marý mín........ ég man bara ekki andskotans neitt!!! Ég er einmitt rétt í þessu að skoða myndir frá djamminu og ég bara spyr.... hverjir eru þessir gaurar..... ég man heldur ekkert eftir því að hafa stillt mér upp með þessum og hinum,,,,, hvað var ég að gera???? Það er alveg greinilegt að harði diskurinn minn er hættur að þola alkóhól hreinsun!!!

Já svo er komið að toppikinu, jú jú þið hélduð að ég væri að vísa í að ég væri loksins að blogga en nei svo aldeilis ekki. Ég ætla að fjalla um gulrótarbuxur. Niðurþröngar og god damn sexy buxur*. Loksins loksins fáum við að sjá 100 manns hvern 20.000 fermetra klæðast svona flottum buxum..... Lending í haust..... allir að koma og nálgast þetta, verður alveg huge vinsælt, gjörsamlega rifið út!!!

Jæja er ekki bara komið gott, má ég nokkuð ofreyna mig svona á fyrstu færslunum eftir sumarfrí,,,, fæ ég ekki smá reynslutíma :P

Kveðja Bejay


» 19 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 22:40:23 / bjarney

Alveg að fara til útlanda !

Hey peepzzz, Vildi bara leyfa ykkur að vita að ég er að fara til útlanda á morgunn þannig að þið eigið ekkert eftir að heyra í mér næstu 2 vikurnar,,,, ekki það að ég sé eitthvað rosa öflug í blogginu en,,,,,,,, ég er samt að fara til útlanda að drekka áfengi!!!!! pssst...það eru komnar myndir úr kveðju partýinu inn á http://public.fotki.com/bjarneyh2/3juni/ --- endilega kíkið á þær :) En alla vega þá segi ég bara adíós amigós :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 10:21:11 / bjarney

Bláa langbesta kringlulaga eurovisionhátíðin!

Afhverju er lífið svona.....nei þetta á ekki að vera ein enn ömurleikafærsla! Reyndar þá fær maður fleiri viðbrögð við þeim heildur en svona kátum færslum :P

Úú ég verð að segja ykkur hvað það var gaman á laugadaginn, við fórum í Bláa lónið og eftir það fórum við til Keflavíkur og fengum okkur að borða á Langbest (yeah I know, hver lætur staðinn senn heita Langbest!) Og svo fórum við í Kringluna, en það var nú lítið gert þar. Samt ótrúlega gaman hjá mér og Höllu þegar við sátum á bekknum fyrir Accessorize!

Svo næst er það Eurovision, ég verð ein heima :) Einhver til í geim? Látið þá vita blínk blínk ;)

Jæja segjum þetta gott í bili...


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 22:28:00 / bjarney

Góða kvöldið.

Ég vill bara þakka fyrir mig á laugardagskvöldið, takk fyrir komuna þetta var yndislegt kvöld :D

Ég hef lítið verið að gera í dag....lítið = ekkert! Ég setti reyndar myndir síðan á afmælisdaginn...þær eru mjög fáar.... tja flotta kakan sést nú samt :) Ég er orðin svo klár í þessu myndadóti :)

Újé, ég er að downloada svona Google Earth dóti. Þetta er algjör snilld. Ég var inn á öðru svona Google dæmi um daginn, sem maður þarf ekki að downloada en það er ekki eins flott, ég bara man ekki hvað það heitir í augnablikinu og þar var ég alveg að missa mig í því að skoða svona landakort og læti. Vá hvað þetta er skemmtilegt!

Það er bara 35 og hálfur sólahringur þangað til við förum til Fuerteventura, sjá hér!

Vildi bara segja takk:)

Kv.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Leitarbox